Peningar og reiði
5.2.2011 | 19:20
Ég veit það að fullt af fólki er þessa dagana að berjast í bökkum fjárhagslega. Lægð í atvinnu, háir vextir, efnahagsvandi ýmis konar er að gera mörgum lífið leitt og valda andvöku nóttum. Ég veit líka að margir hafa komið sér, oft ómeðvitað, í mjög vonda og sársaukafulla stöðu í fjármálum, og sér veruleika sinn hrynja og veit að það mun taka marga með sér í fallinu. Þessi staða, auk efnahagsvanda þjóðarinnar, er að buga marga skuldara.
Þessi skuldari lifir í vanmætti gagnvart fjármálum og er stjórnlaus í leit að lausnum. Margir dvelja einfaldlega í afneitun. Skuldarinn hefur þá rörsýn og ranghugmynd að hann geti "reddað" heimilinu og skuldunum með skammtíma reddingum. Hann skortir yfirsýn og sér aðeins hluta af vandanum. Hann er í skömm og gerir allt sitt til að breiða yfir. Vegna þess að hann er í skömm þorir hann ekki að koma upp á borð með lýgina og notast við það sem hann hefur til að "bjarga sér". Ræðir við félaga frekar enn þá sem ættu að vita af vandamálinu. Hann stofnar til skulda án ábyrgða, því þær skuldir getur hann nálgast og nýtt til að bjarga ástandinu án þess að heimilið viti af. Hann stofnar til skulda í ábyrgð án vitundar heimilisins, og hann lýgur að ábyrgðarmanni um aðstæður. Allt er gert til að fela skömmina og mistökin, og óheiðarleikinn verður öllu sterkari. Og því lengri tími sem líður verða atburðir, afleiðingar og skuldastaða verri.
Fyrir slíkan skuldara er þögnin er besta vopnið. Skuldarinn forðast að tala um stöðuna og oftar en ekki lýgur hann til um stöðuna til að vernda sjálfan sig. Fegrar ástandið. Þessi skuldasöfnun er hömlulaus. Viðkomandi upplifir sig í stjórnleysi og óttast framtíð og afkomu. Verði eitthvað til að hindra hans örvæntingafullu leiðir til að "redda" málunum getur hann misst stjórn á skapi sínu.
Hömlulaus skuldasöfnun er sársaukafullt, ruglandi og eyðandi afl. Hömlulaus skuldasöfnun birtist í ýmsum myndum allt frá því að taka óábyrg lán til hömlulauss kaupæðis. Skuldasöfnun getur birst sem ofeyðsla, fátæktarhugsun eða að eiga ekki nóg. Öll skuldasöfnun hefur alvarleg áhrif á fjárhagsleg, tilfinningaleg, andleg, líkamleg og félagsleg gæði lífs okkar.
Einkenni hömlulausrar skuldasöfnunnar eru mörg. Skuldarinn á það til að nota setninguna "að fá lánað" yfir hluti eins og sígarettur, penna og þess háttar, þótt vitað sé að slíkt verði ekki endurgreitt. Skuldari fær lánaðar litlar fjárhæðir hjá vinum og kunningjum. Þúsund kall hér, hundrað kall þar. Að vera í reikning, fá skrifað, vera með kreditkort er að vera fullorðinn. Minni pressa og áhyggjur að borga með kreditkorti en að staðgreiða. Skuldari upplifir sig merkilegan bara fyrir það eitt að borga reikningana sína eins og aðrir. Skuldari finnst hann eignast eitthvað þegar sótt er um lán. Skuldari er lokaður og vandræðalegur þegar verið er að ræða fjármál. Hann lætur sig litlu varða um reikninga sem ekki "verður" að borga þennan mánuðinn, og á oft erfitt að muna hvernig hann ætlar að ráðstafa þeim fjármunum sem hann ræður yfir hverju sinni. Hann upplifir óraunverulegar væntingar þess efnis að það muni verða til peningar í framtíðinni fyrir þeim skuldbindingum sem hann ert að stofna til í dag. Hann upplifir óútskýrða sælutilfinningu við það að opna nýjan kredit reikning eða yfirdrátt. Skuldarinn telur sig varla raunverulega geta "lent" í alvarlegum fjárhagsefiðleikum og það muni alltaf vera einhver sem hann getir snúið sér til. Hann finnur undirliggjandi og stundum ómeðvitað tilfinningu þess efnis að hann þurfir einhvern til þess að hjálpa sér til þess að komast út úr fjárhagsvandræðum sínum.
Og það er einmitt það besta sem hægt er að gera. Fá einhvern til að aðstoða okkur. Ekki fá einhvern til ða borga reikninga og skuldir heldur finna einhvern sem við treystum og viðurkenna vanmátt og stjórnleysi í fjármálum. Drepa óheiðarleikann með hreinskilni. Að geta rætt við einhvern sem hefur gengið þessa leið og hefur risið upp úr myrkrinu er ómetanlegt fyrir okkur. Að upplifa að við erum ekki ein í vanda og ekki ein um að einangra okkur og forðast að tala um vandamálin gefur okkur styrk. Þetta fólk er til staðar og er viljugt að sýna stuðning, leiðbeina og kenna viðkomandi að breyta rétt. Verða heiðarlegur, óeigingjarn og löglegur. Og umfram allt styðja viðkomandi til að þekkja sjálfan sig og verða hreinskilinn.
Ef þig vantar einhvern til að tala við getur þú sent mér tölvupóst á skuldlaus.blog@gmail.com eða hitt mig í Virkjun, Reykjanesbæ alla miðvikudaga eftir hádegi.
Kv. Haukur
|
Braut gler í hraðbanka |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Skuldavandi heimilanna ??
3.12.2010 | 10:50
Hagsmunir allra | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að ná andanum í fjármálum
13.11.2010 | 15:28
Erum að flytja á nýjan stað
5.11.2009 | 13:51
Bankakerfi almúgans | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
SMS lán
31.10.2009 | 00:03
Hömlulaus skuldari | Breytt s.d. kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gagnrýnir lög um greiðslujöfnun
30.10.2009 | 15:45
Að hafa vaðið fyrir neðan sig
30.10.2009 | 12:02
Skuldafrelsi | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Path of least resistence - Brains Before Bullets
28.10.2009 | 12:49
Bankakerfi almúgans | Breytt 30.10.2009 kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fleiri innkaupatrix
28.10.2009 | 10:06
Daglegur sparnaður | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig væri að fá eðlilegt fjármálakerfi
27.10.2009 | 10:00



