Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Veltuverkfall

Bankar voru í upphafi frábær hugmynd, en einmitt bara það, frábær hugmynd.  Þeir áttu að vera góð viðbót og ætlaðir til að auka þægindi okkar, en þeir voru aldrei, og verða aldrei nauðsynlegir í samfélaginu. 

Það fer til að mynda enginn með hjartveikan mann í banka.  Það er brunað beint á sjúkrahús.   Það fer enginn með ólæs börnin í næsta bankaútibú.  Þau fara í skóla.  Og á meðan enginn er samdrátturinn í nýjum og/eða gjaldþrota bönkum sættum við okkur við niðurskurð í heilbrigðiskerfinu og menntamálum.   

Bankinn er bara fjármiðill.  Lánar og geymir peninga, og það meira að segja á mjög ósanngjörnum kjörum.  Enn bankar hafa gert sig ómissandi í alltof flóknum fjármálaheimi.  Veð og ábyrgðir, vextir og verðbólga binda okkur eins og þræla.

Því fyrr sem við sjáum að bankar eru bara þjónustufyrirtæki, því fyrr losum við okkur úr ímynduðu skuldafangelsinu.  Okkur dugar einn banki.   Og ef hann hentar ekki eða verður gráðugur, þá hættum við að versla við hann og fáum okkur annan. Punktur.

Það er hávær umræðan núna varðandi greiðsluverkfall almennings, en ég hef heyrt marga telja þetta góða hugmynd og væru samt bara með ef þeir þyrðu.  Flestir óttast nefnilega ömurleg ítök bankanna og leiðir þeirra gegnum veð, ábyrgðir og dómstóla til að gera viðskiptavini sína öreiga.

En þetta er ekki ómögulegt.  Við eigum öll okkar tækifæri til þess að láta heyra í okkur.

Ein leiðin er áhlaup á bankana, eða veltuverkfall.  Veltuverkfall er ekki greiðslustöðvun, það hættir enginn að greiða af lánum og/eða hættir að greiða reikninga.  Í veltuverkfalli hættum við að velta peningunum okkar,  launum og sparifé, gegnum bankana. Við hættum að versla ónauðsynjar af bönkunum.

Gerðu til dæmis:

  • Forðastu að velta peningum í gegnum bankakerfið.
  • Reyndu að greiða reikninga milliliðalaust
  • Farðu einfaldlega fram á að launin verði greidd út í seðlum.
  • Notaðu staðgreiðslu í stað debit og kreditkorta
  • Stingdu debitkortinu ofan í skúffu
  • Farðu í bankann og tæmdu alla reikninga.

Ef þú átt ekki kost á að loka reikningum vegna til dæmis yfirdráttarskuldar, leggðu mánaðarlega inn á reikninginn og láttu lækka yfirdráttinn sem því nemur.  Hafðu bara eins lítinn pening í bankanum og þú getur.

Ef þú vilt ekki geyma peninginn undir koddanum, má leigja bankahólf eða leggja hann inn hjá minni Sparisjóðabönkum, sem faldir eru um land allt.  Hagsmunasamtök Heimilanna eru til dæmis með reikning hjá Sparisjóði Suður Þingeyinga - Laugum.

Aðalatriðið er að þú ræður hvert þú beinir peningunum þínum. Hvort sem það eru verslanir, bensínstöðvar, bankar eða koddinn.  Þú ræður.  

Ég er í veltuverkfalli.  Hvað ætlar þú að gera?


mbl.is „Þið settuð Ísland á hausinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Debitkortinu lagt og heimabankinn kvaddur

cartoon_debt_cardEin leið til þess að öðlast fjárhagslegt frelsi er að minnka afskipti bankanna af fjármagni mínu.  Bankinn veit nefnilega allt um mig, gegnum debitkortið og reikningana mína.  Bankinn veit hvenær ég versla, við hvern ég versla og hve mikið. Bankinn hefur stjórnina.  Ég er töludofinn.  Ég fæ laun inn á reikning,ég eyði út af reikning, ég greiði þóknun fyrir, fer jafnvel yfir á reikning, fæ yfirdráttarlán, borga vexti.  Allt þetta geri ég í trausti mínu við bankann og án þess að fara yfir allt lið fyrir lið.  Og ég tapa fjármunum. 

Bankinn tekur ótrúlegar upphæðir árlega fyrir það eitt að lána mér debitkort og leyfa mér að "staðgreiða" með því.  Þóknun fyrir að færa tölur, er bæði skuldfærð af mér og kaupmanninum.  Vextir, FIT kostnaður...... ég blæði.

Allt sem bankinn gerir, gerir bankinn fyrir sig.  Allar leiðir til þess að hafa af okkur pening eru notaðar.  Og okkur er "leyft" að halda að við ráðum ferðinni og allt er í nafni þæginda og tímasparnaðar. 

Dæmi:  Hver er fljótari að greiða fyrir vörur í Bónus kl 17:30 á föstudegi? Maður A með Debitkorti, eða Maður B með seðlum?

Þess vegna er ég að leggja af stað í bæinn að skila kortunum, loka einkabankanum, stöðva allar boðgreiðslur, og láta loka öllum nema einum sparireikningi.  Þetta er líka öruggasta vörnin fyrir heimabankann og ekki þarf ég að óttast óprúttna debit og kreditkortaþjófa lengur. 

Hvað breytist?

  • Ég fæ launin mín greidd í reiðufé, versta falli ávísun
  • Ég þarf sjálfur að leggja inn á sparisjóðsbók
  • Ég fæ alla reikninga senda heim
  • Ég fer sjálfur í bankaútibú til þess að greiða reikningana.
  • Ég þarf að eiga pening til að geta eytt pening
  • Ég get ekki skuldsett mig óafvitað (FIT)
  • Ég greiði ekki kostnað fyrir það eitt að borga staðgreitt
  • Ég get óskað eftir staðgreiðsluafslætti

Einnig fæ ég útiveruna, tíma frá vinnu, fulla meðvitund um fjármálin og þetta bætir félagsleg tengsl mín við aðra.  Bankar bjóða líka fullt af fríu dóti, til dæmis pennum, eyðublöðum, kaffi og sælgæti.

Ég ætla að bakka 20 ár aftur í tímann og láta reyna á gömlu góðu staðgreiðsluhættina og sjá hvort ég haldi ekki fleiri krónum inni.   

Keep it simple!!!


mbl.is Óþolinmæðin og örvæntingin mikil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur eitt í nýju lífi

Hver er að vinna fyrir okkur? Styðjum þann. Hættum að væla yfir því sem ætti að gera og skammast yfir þeim sem gera ekki neitt fyrir okkur. Styðjum og klöppum fyrir þeim fáu sem gera eitthvað. Stöndum saman sem vinir og stöndum með vinum okkar.

Verk segja meira en töluð orð. Alþingi má blaðra sig rænulausa í nokkra áratugi í viðbót. Þau verða þá ekki fyrir vinnandi fólki á meðan.

Hvað ætlar bankinn að gera ef við borgum ekki? Gera okkur gjaldþrota og útiloka okkur frá kerfinu? Eru það einhver endalok? Kannski er það frelsi að mega ekki taka þátt í kerfi sem hugsar ekki um manneskjur.

Hver menntar börnin, byggir heimili, veiðir fisk, ræktar grös og elur búfé? Er það  Steingrímur J? Geysir Green eða Magma? Kannski Icesave-samingurinn?

Það ert þú, lesandi góður, og Nýtt líf hefst hjá þér.  Það sem þú gerir strax  í dag hefur áhrif á framvindu mála.

Kaupum mjólkina beint frá bóndanum. Hættum að éta útlenskt og kaupum bara Frón kex. Kaupum fisk í fiskbúðum, kjöt í kjötbúðum og bækur í bókabúðum. Byggjum upp nákvæmlega það sem við viljum. Við ráðum hvert peningurinn okkar fer. Við þurfum bara að gera það strax í dag. Farðu og lifðu eins og þú vilt lifa, hugsaðu um sjálfan þig, fjölskyldu og vini þína.


mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband