Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010

Skuldavandi heimilanna ??

Ég er ennþá að reyna að tengja saman ofvöxt og spákaupmennsku fjármálastofnanna við svokallaðan skuldavanda heimilanna, en ekkert gengur.

Ef við skoðum aðdraganda hins svokallaða skuldavanda heimilanna fæ ég ekki séð að heimilin eigi sökina. Ég er ekki menntaður peningamaður, en ég get vel séð hvað er raunsætt og hvað ekki. Ég hef engan hitt sem fór í bankann sinn og bað sérstaklega um skuldbreytingu til að koma sér í óefni.  Ég hef engan hitt sem ákvað að skuldsetja á sig einn bíl í þeirri von að skuldin hækki óraunhæft á næstunni. Ekki heldur með íbúðir sem voru sett á erlend lán. Enginn sem ég hef talað við gerði nokkuð annað en að fylgja þjóðfélaginu samkvæmt forskrift og ráðleggingum fjármálafyrirtækjanna. Fylgja því sem aðrir sögðu að væri snjallt og hagkvæmt.

Ef bankahrunið var fjármálaheiminum að kenna og heimilin sitji vanmáttug í súpunni vegna ytri afla er þá ekki rétt að við förum að kalla þetta sínu rétta nafni, vandamál fjármálastofnanna?

Prófið að skipta út orðinu"skuldavandi heimilanna" og setja í staðinn "innheimtuvandi fjármálafyrirtækja". Ef þíð takið allar fréttir, ummæli, umræður, tillögur að skuldbreytingum, aðstoð við heimilin í landinu og skoðið með þessu hugarfari má sjá merkilega hluti.

Ég get ekki séð að þetta sé skuldavandi heimilanna.  Þetta er innheimtuvandi fjármálafyrirtækja!

*Meira um fjármál og tilfinningar á www.skuldlaus.tk*


mbl.is Rætt um verulegar afskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband