Tilboð bílaumboða

laghenti bifvélavirkinn

Enn eitt snilldartilboðið dettur inn um lúguna.

Í Þetta sinn er Bílaumboðið Hekla að bjóða kjarakaup í viðhaldi á bílnum, vetrarstandsetning á vildarkjörum. Bremsuklossar að framan, bremsuborðar að aftan, tvær rúðuþurrkur, tvær ljósaperur, 4 lítrar af smurolíu og ein smurolíusía. Samtals, með vinnu og efni: 191.087 krónur.

Tilboðið er víst það, að boðið er upp á vaxtalaust þjónustulán, til að skipta þessu niður á 12 mánuði.

Það má líka segja ykkur að ég gerði þetta allt sjáfur, tók samtals tvær klukkustundir í vinnu, og efnið kostaði undir 30 þúsund krónum.   Ég var því með 80 þúsund krónur í laun á tímann í bílskúrnum.

Leið eins og útrásarvíkingi.

Ef þú ert ekki laghenti bifvélavirkinn þá eru til aðrir en umboðin sem taka að sér viðgerðir og viðhald bifreiða, og rukka sanngjarnt verð fyrir.

Flest verkstæði geta séð um almennt viðhald bílsins, hvaða tegund sem hann heitir. 

Skora á alla að gefa sér góðan tíma til að gera verðkannanir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stjórnendur Heklu hafa alltaf verið stórklikkaðir þegar kemur að verðlagningu bæði á varahlutum og verkstæðisvinnu,mæli með því að fólk skipti við alla aðra en þá.Þetta er ósvífið batterí þegar kemur að verðlagningu á þjónustu.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 17.10.2009 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband